Nýta eiginleika sem heilbrigt fólk skortir 4. október 2010 04:00 Hjörtur Grétarsson.
Gangi áætlun fyrirtækisins Sérfræðingarnir eftir munu allt að átján einhverfir einstaklingar hljóta þjálfun strax á næsta ári sem gerir þeim kleift að takast á við verkefni á almennum vinnumarkaði. Fyrirmyndin er Specialisterne í Danmörku sem hefur vakið heimsathygli fyrir aðferðir sínar við að meta og þjálfa einstaklinga á einhverfurófi og útvega þeim síðan verkefni við hugbúnaðarprófanir og aðra nákvæmnisvinnu í stórfyrirtækjum á borð við Microsoft, Oracle, Cisco og Lego. Sérfræðingarnir á Íslandi er sjálfseignarstofnun sem var stofnuð af Umsjónarfélagi einhverfra og einstaklingum sem hafa áhuga á að bæta atvinnutækifæri þessa hóps, að sögn stjórnarformannsins Hjartar Grétarssonar. „Stór hluti verkefnisins er að flytja þekkingu frá Danmörku til Íslands til að þjónusta þessa einstaklinga, ná samskiptum við atvinnulífið og ramma inn verkefni handa þessum hópi“, segir Hjörtur. Leonardo-menntaáætlun ESB hefur veitt Sérfræðingunum, Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis og erlendum samstarfsaðilum styrk sem nægir til að ýta verkefninu úr vör. Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í málefnum fatlaðs fólks og leiðir verkefnið. Hjörtur segir að tryggja þurfi rekstur í þrjú til fjögur ár áður en starfið hefst. „Við þurfum um tólf milljónir á ári til að borga fyrir greiningar og þjálfun, en við vonum að annað verði sjálfbært,“ segir Hjörtur sem vill hætta að horfa á einhverfu sem fötlun. „Reynum að líta til þessara einstaklinga út frá styrkleikum þeirra. Þeir sem geta nýtt sér þjálfunina eru þeir sem fólk þekkir sem dellukarla og geta sérhæft sig umfram aðra; stundum kallaðir sérvitringar. Þeir geta í framtíðinni leyst ýmis nákvæmnisverk, í hugbúnaðargeiranum vissulega en einnig hjá fjölmörgum öðrum atvinnugreinum. Ég þekki til einstaklinga sem hafa greindarvísitölu upp á 160 til 170 en sitja heima verkefnalausir. Þetta er vettvangur fyrir verkefnalausa snillinga.“ Þeir sem hljóta þjálfun munu fá vinnu hjá Sérfræðingunum, en fyrirtækið tekur að sér verkefni eins og hvert annað hugbúnaðarhús sem selur sína þjónustu. „Hins vegar eru þeir ekki bundnir af því heldur nýtist þetta sem stökkpallur út í lífið.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira