Innlent

Mótmælendur sitja fyrir þingmönnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mótmælendur kveiktu risabál þar sem meðal annars brenna tveir bekkjanna sem prýddu Austurvöll.
Mótmælendur kveiktu risabál þar sem meðal annars brenna tveir bekkjanna sem prýddu Austurvöll.

Hluti mótmælenda færði sig af Austurvelli og aftur fyrir þinghúsið eftir að þingfundi lauk í kvöld.

Þingfundi lauk um tíuleytið í kvöld og mótmælendur búast við að þingmennirnir fari bakdyramegin út úr húsinu.

Þegar guðsþjónustu sem haldin var fyrir þingfund á föstudaginn lauk fóru þingmenn bakdyramegin inn í þinghúsið. Það kom þó ekki í veg fyrir að sumir þingmannanna fengu egg á sig.

Mótmælendur sprengdu líka flugelda í kvöld.
Mótmælendur hafa brotið fimm eða sex rúður í þinghúsinu, segir fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem er á staðnum.

Þúsundir manna hafa verið á Austurvelli í kvöld. Þeir hafa kveikt bál, sprengt flugelda og barið í tunnur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×