Jóhanna: Stendur ekki á mér að víkja 4. október 2010 19:57 Jóhanna Sigurðardóttir Mynd/GVA „
Það hefur að sjálfsögðu ekki farið framhjá mér að ýmsir þingmenn kalla nú eftir kosningum. Muni nýtt þing, ný ríkisstjórn og tafarlausar kosningar auðvelda úrlausn þeirra viðamiklu verkefna sem framundan eru, þá mun ekki standa á mér að víkja til hliðar," sagði Jóhanna Siguðardóttur, forsætisráðherra, í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. „Ég og ríkisstjórn mín munum hins vegar ekki skorast undan því að ljúka þeim verkefnum sem við blasa, sé það vilji þingsins." Á sama tíma og Jóhanna flutti ræði sína heyrðist vel í mannfjöldanum á Austurvelli þar sem bumbur voru barðar. Jóhanna sagði ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa tekið við stjórnartaumunum eftir eitthvert alvarlegasta efnahagshrun síðari tíma. Samt sem áður hafi á ríkisstjórninni tekist á skömmum tíma að ná tökum á efnahagsvandanum og nú horfi fram á betri tíð. „Erlendir sérfræðingar tala jafnvel um kraftaverk í þessu samhengi." Fjölmiðlar ala á sundrungu Hún sagði umhugsunarvert hve fjölmiðlar hér á landi hafi dregið upp dökka mynd af ástandinu og fjallað lítið um þann mikla árangur sem náðst hafi. Þá sagði hún fjölmiðla ala á óánægju og sundrungu. Frá Austurvelli í kvöld.Mynd/Anton Brink Jóhanna sagði ríkisstjórnina hafa lokið eða komið í farveg meirihluta þeirra mála sem kveðið er á um í samstarfsyfirlýsingu stjórnarinnar. „Við höfum komið fjölmörgum framfaramálum í framkvæmd og við höfum ekki látið staðar numið á þeirri vegferð eins og ný 216 mála þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þing er meðal annars til vitnis um," sagði Jóhanna og bætti við að grunnur hefði verið lagður að mestu uppstokkun í stjórnkerfi og stjórnsýslu hins opinbera á lýðveldistímanum. Bankarnir hafa dregið lappirnar Jóhanna sagði mörg heimili hafa nú þegar fengið skjól eða úrlausn sinna mála með greiðsluaðlögun. „Ég verð að segja í hreinskilni að hinir nýju bankar hafa valdið mér vonbrigðum þegar kemur að skuldaaðlögun fólks og fyrirtækja. Samið var við fjármálastofnanir um að þær kæmu til móts við viðskiptavini sína með sértækri skuldaaðlögun á grundvelli laga." Þá sagði Jóhanna: „Bankarnir hafa dregið lappirnar þegar kemur að því að leysa úr stöðu einstaklinga sem eru að komast í þrot. Við þetta verður einfaldlega ekki unað og stjórnvöld hljóta að fara fram á skýringar og úrbætur. Það gengur ekki að eigur fólks séu settar á uppboð fyrr en allar aðrar leiðir hafa verið fullreyndar. Í einhverjum tilvikum er sú leið hinsvegar óhjákvæmileg og þá verðum við að geta treyst á leigumarkaðinn og félagslegar húsnæðislausnir."
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira