Innlent

Þyrlan leitar Andrésar í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bifreið sömu gerðar og sú sem leitað er að.
Bifreið sömu gerðar og sú sem leitað er að.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið á sveimi yfir suðvesturlandi í dag í leit að Andrési Tómassyni sem saknað hefur verið síðan 24. september síðastliðinn.

Um 200 björgunarsveitarmenn leituðu um helgina en sú leit bar ekki árangur. Að sögn Ágústar Svanssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, fara björgunarsveitamenn ekki aftur af stað fyrr en frekari vísbendingar berast um það hvar hægt sé að leita. Ágúst segir að ekki hafi náðst að vinna úr þeim vísbendingum sem lögreglunni hafi borist hingað til.

Ágúst segir að lögreglan leggi áherslu á að finna bíl Andrésar, sem er ljósbrúnn Suzuki Grand Vitara frá 2003 með bílnúmerið LZ-195.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×