Vilja uppboðsmarkað með eignir bankanna Hafsteinn G. Hauksson skrifar 24. október 2010 13:00 Birkir J. Jónsson er fyrsti flutningsmaður tillögunnar. Mynd/ GVA.
Opinberum uppboðsmarkaði með eignir sem fjármálastofnanir hafa leyst til sín verður komið á fót, ef Alþingi samþykkir þingsályktunartillögu sem lögð var fram í vikunni. Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar, en auk hans flytja aðrir þingmenn Framsóknar og tveir þingmenn Hreyfingarinnar tillöguna. Hugmyndin er sprottin úr vinnu ungliðahreyfingar Framsóknarflokksins, en hún gerir ráð fyrir að efnahags- og viðskiptaráðuneytið hafi forgöngu um að stofnaður verði gegnsær uppboðsmarkaður í umsjón hins opinbera fyrir eignir sem bankar og fjármálastofnanir hafa leyst til sín. Íbúðarhúsnæði verður þó undanþegið. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er einn flutningsmanna tillögunnar. „Það er ofboðslegt vantraust á bankakerfið og það er reglulega haft samband við okkur þingmenn þar sem er verið að benda okkur á að það er ekki jafnræði í aðgangi að þeim hlutum og eignum sem bankarnir hafa tekið yfir," segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar og einn flutningsmanna tillögunnar. „Við höfum líka öll séð fréttir um það að það er ekki jafnræði sem gildir um afskriftir fyrirtækja. Þetta er í rauninni ein af þeim tillögum sem við erum að leggja fram til að auka traust og gegnsæi í því hvernig er verið að meðhöndla eignir sem bankarnir hafa tekið yfir," segir Eygló. Eygló segir að eignirnar yrðu auglýstar á þar til gerðri vefsíðu að lágmarki í ákveðinn tíma, og ef hæstu tilboðum er hafnað þurfi fjármálastofnanir að gera grein fyrir þeirri ákvörðun sinni. Hún segir banka ekki eiga að standa í almennum fyrirtækjarekstri, og því eigi að lágmarka tímann sem bankar hafa eignir í sinni umsjá. Þó þurfi að líta til þess að verðmæti eignanna myndi hrynja ef þær yrðu allar settar á markað á sama tíma. „Tíminn sem talað hefur verið um er eitt til tvö ár. Ég teldi að það væri það sem við ættum að miða við," segir Eygló. Spurð hvort hið opinbera eigi að hlutast til um hvernig bankar sem komnir eru í eigu kröfuhafa hámarka virði sinna eigna segir Eygló: „Við setjum margskonar reglur um hin ýmsu fyrirtæki og þetta held ég að sé raunar til að styðja við það uppgjör sem þarf að fara fram hjá fjármálafyrirtækjum. Ég held að þetta myndi raunar hjálpa bönkunum að auka traust og trúverðugleika."
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira