Innlent

Fjölþjóðlegt fjör í Háteigskirkju

Unglingar frá Íslandi, Ítalíu, Tyrklandi og Litháen á tröppum Háteigskirkju.Fréttablaðið/Vilhelm
Unglingar frá Íslandi, Ítalíu, Tyrklandi og Litháen á tröppum Háteigskirkju.Fréttablaðið/Vilhelm

Það hefur verið líf í tuskunum í Háteigskirkju þessa vikuna, þar hafa fjörutíu unglingar frá jafnmörgum löndum fræðst um föðurlönd hinna, menningu í breiðum skilningi og trúarbrögð. Unglingarnir, sem flestir eru um fimmtán ára gamlir, eru frá litlum bæ í Norður-Tyrklandi, smábæ á Sikiley, frá Vilníus í Litháen og svo frá Íslandi.

Björgvin Þórðarson, framkvæmdastjóri Háteigskirkju, hefur haft umsjón með verkefninu sem er styrkt af Evrópu unga fólksins. Hugmyndin að verkefninu kviknaði í fyrra, segir Björgvin, sem þótti það áhugaverð hugmynd að leiða saman unglinga af ólíku þjóðerni. „Þetta hefur tekist afar vel, þau skemmta sér vel saman og eru metnaðarfull í sinni menningarkynningu,“ segir Björgvin sem er afar ánægður með verkefnið til þessa, krakkarnir læri heilmikið um menningu annarra og fá að sjá hvernig jafnaldrar þeirra búa. Í apríl hittist hópurinn svo aftur á Ítalíu og svo er Tyrklandsferð á dagskránni með haustinu. - sbt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×