Skilanefnd tekur yfir D‘Angleterre-hótelið 19. janúar 2010 03:45 lúxushótel Nordic Partners keypti hótel D‘Angleterre við Nytorv í Kaupmannahöfn haustið 2007. Það hefur um árabil verið með þekktustu hótelum Norðurlanda.
Skilanefnd Landsbankans mun á næstu vikum taka yfir hótelrekstur NP Hotels í Danmörku og einkaþotur í eigu leigufyrirtækisins IceJet. „Samningar eru mjög langt komnir og við erum mjög sátt við það,“ segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndar Landsbankans. NP Hotels og IceJet eru bæði í eigu eignarhaldsfélagsins Nordic Partners. Undir NP Hotels heyrir lúxushótelið D‘Angleterre auk hótela og veitingastaða á borð við Kong Fredrik og Front. Nordic Partners keypti hótelið á haustmánuðum 2007 og greiddi langt yfir uppsettu verði. IceJet hefur yfir að ráða fimm Dornier-þotum, sem hafa verið innréttaðar fyrir efnaða einstaklinga og gerðar út frá Bretlandi. Reynt hefur verið að selja þrjár þeirra síðustu mánuði. Umfangsmesti rekstur Nordic Partners felst í matvælaframleiðslu og útleigu á fasteignum í Lettlandi. Fram kom í Viðskiptablaðinu seint í fyrra að heildarskuldir eru í kringum níutíu milljarðar króna. „Staðan í Lettlandi er litlu betri en hér. Reksturinn er gríðarlega erfiður og fyrirtæki þar hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum,“ segir Friðrik Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Straums-Burðaráss, sem hefur unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Nordic Partners. Hann bendir á að róðurinn hafi þyngst við hrun fasteignamarkaðarins þar auk þess sem leiguverð hafi lækkað mikið en Nordic Partners á fjögur hundruð þúsund fermetra af leiguhúsnæði í Lettlandi. „Þetta hefur haft mikil áhrif á reksturinn,“ segir hann. Unnið er að samningum um örlög matvælafyrirtækjanna við Eystrasalt með stjórnendum Nordic Partners. Ekki er reiknað með breytingum á eignarhaldi tékkneska matvælafyrirtækisins Hamé, sem er skráð sem systurfyrirtæki Nordic Partners. Gamli Landsbankinn fjármagnaði kaupin á Hamé líkt og flest annað hjá Nordic Partners. - jab
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjá meira