Innlent

Aðalmeðferð í máli ökuníðings

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Aðalmeðferð hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli karlmanns sem ákærður er fyrir að aka á lögreglubifreiðar og hurðar slökkviliðsins í Skógarhlíð síðasta sumar. Manninum er gefið að sök að hafa verið drukkinn þegar að hann ók bílnum og skapað mikla hættu.

Maðurinn ók á eftir lögreglubifreið sem bakkað var inn á bifreiðastæði framan við slökkvistöðina og gerði sig líklegan til að aka aftur á hana en lögreglumennirnir komust við illan leik út úr stórskemmdri lögreglubifreiðinni og inn á slökkvistöðina.

Áður en maðurinn lét til skarar skríða hafði hann samband við fréttamann Vísis og tilkynnti honum um fyrirætlan sína. Sagðist hann ætla að myrða lögreglumenn þar sem ofbeldi þeirra hefði gert hann að öryrkja. Maðurinn var færður á viðeigandi stofnun í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×