Innlent

Funda um Icesave í fjármálaráðuneytinu

Frá fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í fjármálaráðuneytinu í dag.
Frá fundi forystumanna stjórnmálaflokkanna í fjármálaráðuneytinu í dag. Mynd/Friðrik

Fundur er nú að hefjast í fjármálaráðuneytinu þar sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og starfandi forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra funda með forystumönnum stjórnarandstöðunnar.

Fundarefnið mun vera Icesave-málið og átti fundurinn að hefjast klukkan hálfellefu. Það hefur þó dregist að sögn ritara fjármálaráðherra sem segir að gert sé ráð fyrir stuttum fundi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×