Möguleikar Húsavíkur aukast 8. febrúar 2010 18:37
Ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir styrkir stöðu Norðurlands í samkeppni um iðnaðaruppbyggingu og gæti dregið úr líkum á því að álver rísi við Húsavík. Orkan kemur úr Þingeyjarsýslum, svaraði iðnaðarráðherra á Alþingi fyrir helgi þegar spurt var hvar ætti að fá orku til atvinnuuppbyggingar nú þegar Þjórsárvirkjunum seinkaði. Þingeyingar voru með sína fulltrúa í Reykjavík í dag á fundum um að nýta þá orku fyrir norðan. Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir að ríkisvaldið sé nýlega búið að skrifa undir samninga við sveitarfélögin fyrir norðan um að kanna kosti á nýtingu orkunnar þar. Það sé alveg skýrt í því samkomulagi að orkuna skuli nýta í Þingeyjarsýslum. Forstjóri Landsvirkjunar sagði í síðustu viku að viðræður hefðu verið við mörg erlend fyrirtæki um nýtingu orkunnar úr neðri Þjórsá. Einhver líklega með iðnað í Þorlákshöfn í huga, en bæjarstjóri Ölfuss nefndi sex verkefni í viðtali á Stöð 2. Reinhard segir að ef það séu svona margir kostir sem hrópa á orku fyrir sunnan þá megi líka velta því fyrir sér hvort það væri ekki rétt að hleypa kostunum þangað sem orkan er. Reinhard kveðst vita til þess að sumir þessara aðila hafi verið að leita hófanna bæði fyrir sunnan og norðan. Þannig virðist ákvörðun um stöðvun Þjórsárvirkjana auka líkur á uppbyggingu fyrir norðan. Reinhard svarar að það megi svo sem segja að samkeppnisstaða, hvort sem það er byggðarlaga eða annarra, sé alltaf hlutfallsleg, miðuð við einhverja aðra. Í því ljósi kunni svo að vera að staða Þingeyjarsýslu styrkist. Þegar ríkisstjórnin í haust neitaði að framlengja viljayfirlýsingu um álver við Húsavík var það beinlínis til að freista þess að fá þangað annarskonar iðnað. Ef það gengur eftir minnka líkur á álveri, - eða hvað? Reinhard kveðst alls ekki líta svo á að þetta verkefni núna, að leita fleiri kosta en þessa mögulega álvers, - að það sé verið að útiloka álverið með því. "Alls ekki. Kannski er það bara hvatning til þeirra sem standa að álversverkefninu að taka nú hraustlegan endasprett í því," segir Reinhard.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Sjá meira