Innlent

Líflegt undir Eyjafjallajökli

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Jarðskjálftavirknin undir Eyjafallajökli frá áramótum er sú tíðasta sem mælst hefur í eldstöðinni frá upphafi stafrænna skjálftamælinga Veðurstofunnar árið 1994, að því er fram kemur í janúaryfirliti stofnunarinnar. Skjálftarnir eru skýrðir með því að svokallað kvikuinnskot sé í gangi en sérfræðingar Veðurstofunnar hafa ekki túlkað hræringarnar þannig að eldgos sé í uppsiglingu.

Athygli vekur að skjálftavirkninn hefur færst ofar í jarðskorpuna, á eins til fjögurra kílómetra dýpi, en Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir það ekki þýða að svo grunnt sé orðið niður á glóandi kviku. Hún sé talin vera á fimm til sex kílómetra dýpi. Steinunn telur að kvikan kunni að vera að safnast þar í kvikuhólf og segir ekki útlokað að ef þrýstingur byggist þar upp geti það leitt til eldgoss. Því verði áfram fylgst náið með þróun mála undir Eyjafjallajökli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×