Innlent

Skipar fjárhaldsstjórn yfir Álftanes

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness. Ákvörðunin er tekin á grundvelli tillögu frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.

Fjárhaldsstjórnin verður skipuð þremur fulltrúum og tekur hún við stjórn fjármála sveitarfélagsins, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá Samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytinu. Má enga greiðslu inna af hendi úr sveitarsjóði nema með samþykki fjárhaldsstjórnarinnar. Að öðru leyti fer sveitarstjórnin áfram með málefni sveitarfélagsins.

Ráðherra leggur áherslu að við fjárhagslega endurskipulagningu sveitarfélagsins verði horft til þess að verja eins og kostur er grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins og félagslega velferð þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×