Hætta í Gettu betur verði ekki haldin árshátíð 8. febrúar 2010 11:44
Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameistara um að fella niður fyrirhugaða árshátíðarferð. Mótmæli standa nú yfir og íhugar nemendafélagið að draga lið skólans úr Gettu betur verði kröfum þeirra ekki mætt. Árshátíð nemenda við Fjölbrautarskólann í Breiðholti hefur síðustu ár verið með þeim hætti að farið hefur verið út fyrir höfuðborgina til þess að skemmta sér. Í ár var ætlunin að fara á Selfoss en skólameistari hefur nú blásið ferðina af. Nemendur eru afar ósáttir með þessa ákvörðun og hafa einhverjir nemendur tekið sig til í morgun og mótmælt ákvörðuninni með því að skrópa í tímum. Formaður árshátíðarnefndar segir að jafnvel hafi verið rætt um að draga lið Fjölbrautarskólans úr spurningakeppninni Gettu Betur verði ekki gengið að óskum nemenda, en árshátíðin á að fara fram þann 4.mars. Í bréfi sem skólameistarinn sendir nemendum vegna málsins segir að skólayfirvöld geti ekki ábyrgst slíkt skemmtanahald tengt gistingu hluta nemendahópsins á hóteli og fjarri heimahúsum þar sem foreldrar geti ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni með fullnægjandi hætti. Þá segir að stór hluti nemenda sé undir 18 ára aldri og sé því ekki sjálfráða. Einnig sé árshátíð með þessum hætti kostnaðarsöm og þannig sé hugsanlega verið að ýta undir mismunun nemenda með tilliti til fjárhagsstöðu. Einnig sé það að keyra yfir Hellisheiði að næturlagi á miðjum vetri með stóran nemendahóp ákveðin hætta. Tæplega 350 manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem stendur fyrir mótmælunum í skólanum. Andri Friðjónsson formaður árshátíðarnefndar segir í samtali við fréttastofu að nokkuð fjölmennt sé í mótmælunum sem fara fram með friðsamlegum hætti. Skólameistari hafi rætt við hópinn í morgun og gera nemendur sér vonir um að skólayfirvöld endurskoði afstöðu sína í þessu máli. Ekki náðist í skólameistara Fjölbrautarskólans í Breiðholti í morgun vegna málsins.
Mest lesið Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Innlent Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Innlent „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent Jónína vill taka við af Ásmundi Einari Innlent Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Veður Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum ekki öll að fara á sjúkrahús“ Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Ýmsar aðferðir til að ná niður drónum Jónína vill taka við af Ásmundi Einari „Við viljum bara finna fyrir öryggi“ Gerður sveitarstjóri Þingeyjarsveitar Þungur dagur, myndir frá óveðrinu og ítrekuð innbrot Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Anna ljósa fallin frá Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin Bætir þrepi við greiðsluþátttökukerfið „Ég bý ekki einu sinni í Reykjavík“ Táningsstúlkur dæmdar fyrir að flytja inn efni sem var ekki bannað Ekki liðnir níu dagar þegar það var aftur brotist inn Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Sjá meira