Innlent

Móðir vill svipta HIV smitaða dóttur sjálfræði

Karen Kjartansdóttir skrifar

Móðir ungrar HIV smitaðrar konu sem er ánetjuð fíkniefnum óttast um dóttur sína og þá sem hana umgangast. Hún segir nauðsynlegt að meðferðarstarf fyrir langt leidda fíkla verði styrkt og fræðsla um HIV smit efld.

Unga konan er rúmlega tvítug en hefur um langt skeið verið í mikilli fíkniefnaneyslu. Móðir hennar segir neysluna hafa byrjað í kringum fjórtán ára aldur. Fljótlega á eftir hafi hún farið í meðferð, eftirfylgnin var þó lítil og fljótlega var hún aftur komin í sama farið. Síðan þá hefur líf hennar verið þrautaganga um stigu fíknarinnar.

Árið 2007 kom í ljós að hún hafði sýkist af lifrabólgu og HIV-veirunni en hvort tveggja er ólæknandi. Hún var þá tvítug.

Móðir hennar hafði samband við sóttarvarnarlæknir því hún vildi að dóttur sinni yrði komið til aðstoðar og komið yrði í veg fyrir að sýkingin dreifðist.

Hún segist óttast mjög að dóttir sín sem og aðrir sem beri með sér HIV hafi og séu að smita smita annað fólk af veirunni án þess að hægt sé grípa í taumanna.

Móðirin segir að þótt hún hafi fundið fyrir góðum vilja og hlýhug hjá starfsfólki á meðferðarstofnunum, fangelsismálayfirvöldum og heilbrigðisyfirvöldum finnist henni mjög skorta á samvinnu milli stofnanna. Þá sé einnig brýnt að fræðsla í skólum um HIV-veiruna verði efld til muna.

Móðir hennar segir að hún vonist helst til þess að hún muni einhver tímann komast í langtímameðferð á borð við þá sem boðið er upp á Krýsuvík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×