Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að birta allt 20. janúar 2010 04:45 Jónmundur Guðmarsson Frambjóðendur flokksins hafa verið hvattir til að veita Ríkisendurskoðun upplýsingar um styrki gegnum árin.
Á næstu vikum ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að birta upplýsingar um heildarframlög til flokksins allt aftur til ársins 2002. Nöfn þeirra sem styrkt hafa flokkinn verða einnig birt, að því gefnu að þeir samþykki að verða nafngreindir. Svo segir Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri flokksins. Rétt fyrir áramót birti Ríkisendurskoðun upplýsingar frá stjórnmálaflokkunum um framlög og fjárhag þeirra allt aftur til 2002. Sjálfstæðisflokkurinn skar sig úr þar, því upplýsingar frá honum takmörkuðust við flokksskrifstofuna eina og enginn styrkveitandi var nafngreindur. „Ástæðan fyrir því að við gáfum ekki upp þessi nöfn var sú að þau eru mörg og við vorum, og erum enn, að leita samþykkis frá þeim sem veittu styrkina,“ segir Jónmundur og bendir á að flokkurinn starfi í 140 einingum um allt land. „Við erum að hringja í þá, en þetta eru ansi mörg símtöl,“ segir hann. Að þessu loknu, vonandi á næstu vikum, verði Ríkisendurskoðun svo sendar nýjar og ítarlegri upplýsingar. „Það stóð aldrei annað til, en tíminn var naumur þarna fyrir áramót og verkið mikið,“ segir hann. Spurður hvort einhvers konar átak verði gert í sambandi við komandi sveitarstjórnarkosningar, um að gamlir frambjóðendur skili inn upplýsingum aftur í tímann, segir Jónmundur að allir frambjóðendur hafi verið hvattir til að fara að tilmælum Ríkisendurskoðunar. „Síðan er það í höndum hvers og eins að sinna því verki,“ segir hann. Nokkur þeirra sem stefna á efstu sætin í höfuðborginni skiluðu Ríkisendurskoðun ekki upplýsingum um styrki fyrir síðustu kosningar, svo sem þau Júlíus Vífill Ingvarsson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Kjartan Magnússon. - kóþ
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fleiri fréttir Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Sjá meira