Innlent

Verð íbúða lækkar enn

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í desember síðastliðnum en það er lækkun um 2,2 prósent frá fyrra mánuði, samkvæmt Fasteignaskrá Íslands. Tólf mánaða lækkun nemur 12 prósentum, en síðustu þrjá mánuði hefur íbúðaverð á lækkað um 3,8 prósent.

„Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir níu flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði," segir á vef Fasteignaskrárinnar. - óká




Fleiri fréttir

Sjá meira


×