Gat ekki sagt nei við kallinu 20. janúar 2010 04:30 Friðbjörn Sigurðsson Mun starfa á sjúkrahúsi í höfuðborg Haítí sem almennur læknir.fréttablaðið/pjetur „
Íslenski Rauði krossinn hafði samband við mig um hvort ég gæti starfað með þýska Rauða krossinum við að koma upp spítala í Port-au-Prince. Það er verið að reisa þessa læknamiðstöð núna og ég mun starfa þar sem almennur læknir í mánuð ef allt gengur vel,“ segir Friðbjörn Sigurðsson, læknir á Landspítalanum, sem hélt áleiðis til Haítí í nótt. Friðbjörn segir ástæðuna fyrir för sinni að hann hafi setið námskeið Rauða krossins og því hafi hann verið á lista yfir fólk sem tilbúið er að taka að sér sérstök verkefni eins og þetta. „Ég hef líka dvalið í landinu áður og erfiðara að segja nei þess vegna.“ Friðbjörn dvaldi á Haítí fyrir tveimur áratugum á þeim tíma sem hann stundaði sérnám í lyflækningum í Bandaríkjunum. Þá dvaldi hann á Albert Schweitzer-sjúkrahúsinu sem er inni í miðju landi. Friðbjörn segir það hafa verið mikla lífsreynslu. „Vera mín í landinu á þeim tíma verður þó örugglega hátíð miðað við það sem bíður mín nú,“ segir Friðbjörn. Friðbjörn flaug af landi brott með vél utanríkisráðuneytisins í nótt. Vélin, sem nær í íslensku alþjóðabjörgunarsveitina, er hlaðin hjálpargögnum sem sjálfboðaliðar hafa gengið frá síðustu sólarhringa. Friðbjörn segist vera í launalausu leyfi frá LSH á meðan hann dvelur erlendis en, eins og venja er til, greiðir Rauði krossinn Friðbirni laun þann tíma sem hann dvelur á Haítí. - shá
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira