Innlent

Nóróveirusýking á Hlíð - deildum lokað

Gömul kona. Mynd/ AFP.
Gömul kona. Mynd/ AFP.

Nóróveirusýking er komin upp á hjúkrunar og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Um bráðsmitandi sýkingu í meltingarvegi er að ræða og hefur nokkrum deildum heimilisins verið lokað og eru gestir beðnir um að fresta heimsóknum. Á heimasíðu Landlæknis segir að þær aðgerðir sem grípa þurfi til í tilvikum sem þessum séu óþægilegar og kostnaðarsamar.

Smitaðir þurfa að vera í einangrun, handhreinsun og vönduð þrif í umhverfinu eru mikilvægar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Sýkingin gengur oftast yfir á einum til þremur sólarhringum en sýking getur staðið mun lengur hjá þeim sem eru langveikir og getur Nóróveiran gengið nærri öldruðum og langveikum.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×