Innlent

Fullur sextán ára unglingur á stolnum bíl

Frá Ljósanótt
Frá Ljósanótt
Ljósnóttin í Reykjanesbæ gekk vel fyrir sig, segir varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Mikið af fólki var í bænum en þó ekki jafn margir og í fyrra. Talið er að veðrið hafi spilað inn í það.

Fimm gistu fangageymslur fyrir ölvun og óspektir og þá voru tveir teknir fyrir ölvun við akstur. Annar þeirra var ökuréttindalaus og hinn var sextán ára sem hafði tekið bifreið ófrjálsri hendi í Reykjavík fyrr um kvöldið.

Þá var einn tekinn fyrir fíkniefnaakstur og eitthvað var um minniháttar pústra í bænum í nótt. Það var þó ekkert alvarlegt og leyst á staðnum, sagði varðstjóri.

Umferðin gekk vel út úr bænum í nótt og þá eru einhverjir sem fóru af stað undir morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×