Innlent

Bera slasaðan ferðamann niður jökul

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hvolsvelli, Vík og Hellu voru kallaðar út klukkan korter í þrjú vegna manns sem slasaðist á göngu í skriðjökli sem gengur niður af Sólheimajökli.

Maðurinn, sem er af erlendu bergi brotinn, var á ferð með fimmtán manna hóp og íslenskum leiðsögumönnum.

Í tilkynningu frá slysavarnafélaginu segir að hann sé ekki alvarlega slasaður en sé ógangfær. Því þarf að bera hann af jöklinum og í sjúkrabíl.

Um fimmtán til tuttugu björgunarsveitarmenn taka þátt í aðgerðinni en böruburður í fjalllendi er afar erfitt verk og krefst mikils mannafla, segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×