Árni Páll ætlar að koma böndum á smálánin Þorbjörn Þórðarson skrifar 5. september 2010 18:40
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist geta tekið við eftirliti með smálánafyrirtækjum ef því fylgir aukið fjármagn til stofnunarinnar. Nýr efnahags- og viðskiptaráðherra undirbýr lagafrumvarp sem á að koma böndum á starfsemi lánafyrirtækjanna. Tvö fyrirtæki, Kredia og Hraðpeningar, hafa náð góðri fótfestu á svokölluðum smálánamarkaði, en þau veita örlán, frá tíu upp í fjörutíu þúsund krónur sem greidd eru til baka á mun hærri vöxtum en þekkist í bankakerfinu. Eru lánin veitt án nokkurrar fyrirhafnar með textaskilaboðum. Auglýsingum þessara fyrirtækja hefur sérstaklega verið beint að ungu fólki og hefur það verið tilefni nokkurrar gagnrýni. Starfsemin er hins vegar lögleg og hvorki efnahags- og viðskiptaráðuneytið né FME hafa gert athugasemdir. Ástæða þess að FME hefur ekkert aðhafst er m.a sú að fyrirtækin teljast ekki vera eftirlitsskyldur aðili, samkvæmt lögum um FME. Árni Páll Árnason, sem tók nýverið við starfi efnahags- og viðskiptaráðherra, var andvígur starfsemi þessara fyrirtækja í embætti félagsmálaráðherra en í kvöldfréttum Stöðvar 2 hinn 8. febrúar á þessu ári sagði hann orðrétt: „Ég held að það sé mjög mikilvægt að við gerum allt sem hægt er til þess að koma í veg fyrir að svona siðlaus sjóræningjastarfsemi fái þrifist." Árni Páll sagði í samtali við fréttastofu í dag að hann hefði ekki skipt um skoðun. Óánægja með þessa starfsemi hefði farið vaxandi. Hann sagðist hafa óskað eftir því við embættismenn í sínu ráðuneyti að undirbúa lagafrumvarp um smálánastarfsemi. Markmiðið með því væri að starfsemi fyrirtækjanna yrði gerð leyfisskyld og henni yrðu sett eðlileg takmörk. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við fréttastofu að ef löggjafinn ákvæði að gera þessi smálánafyrirtæki að eftirlitsskyldum aðila með breytingum á lögum um Fjármálaeftirlitið þá gæti eftirlitið tekið við slíku verkefni ef því fylgdi fjármagn. Hann benti á að eftirlitið hefði áður tekið við verkefnum án þess að þeim fylgdi fjárveiting en að slíkt væri erfitt. Reglulegir samráðsfundir eiga sér stað milli FME og efnahags- og viðskiptaráðuneytisins en forstjóri FME hefur ekki fundað með nýjum ráðherra, enda er hann nýtekinn við.
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Fleiri fréttir Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Sjá meira