Innlent

Umfangsmikil leit að neyðarsendi sem fannst í ruslinu

Mynd/Daníel Rúnarsson
Landhelgisgæslan og samstarfsaðilar stóðu fyrir mikilli leit að neyðarsendi frá sunnudegi og fram á mánudag eftir eftir að neyðarskeyti hófu að berast frá sendi sem ekki var lengur í notkun. Við eftirgrennslan kom í ljós að honum hafði verið skilað inn til þjónustuaðila sem ekki fór með hann strax til förgunar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gæslunni.

„Eftir mikla leit og fyrirhöfn fannst neyðarsendirinn að lokum í ruslagámi hjá Sorpu. Hafði hann þá sent fjölda neyðarskeyta sem bárust með reglulegu millibili til björgunarmiðstöðva beggja vegna Norður Atlantshafsins. Hafa björgunarmiðstöðvar ekki möguleika á að loka fyrir neyðarskeyti frá sendum sem ekki eru lengur í notkun, heldur þarf í öllum tilfellum að finna neyðarsendana og fara með þá til förgunar," segir í tilkynningunni.

Af þessu tilefni ítrekar Landhelgisgæslan mikilvægi þess að gömlum neyðarsendum báta, skipa og flugvéla sé strax fargað eftir að þeir eru teknir úr notkun. Handhafar neyðarsenda þurfa að taka rafhlöðu úr og eyðileggja sendinn. Einungis þannig verði komið í veg fyrir mikla leit og fyrirhöfn björgunaraðila.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×