Innlent

Bjarni og Sigmundur samþykkja rannsókn á einkavæðingunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Niðurstaða þingmannanefndarinnar rædd á Alþingi í morgun.
Niðurstaða þingmannanefndarinnar rædd á Alþingi í morgun.
Bæði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, telja vel koma til greina að fram fari rannsókn á einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans í upphafi aldarinnar. Þetta kom fram í máli þeirra á Alþingi í dag.

Það vakti athygli að þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu um það hvort slík rannsókn ætti að fara fram í skýrslu sem þingmannanefndin skilaði af sér á laugardaginn. Fulltrúar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins í nefndinni voru á móti slíkri rannsókn. Formaður nefndarinnar tók ekki afstöðu til málsins og þvi náðist ekki samstaða um að mæla með skipan slikrar nefndar. Bankarnir voru einkavæddir í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hafði boðað að hún myndi leggja til við Alþingi að slik rannsókn færi fram ef þingmannanefndin kæmi ekki fram með slíka tillögu.




Tengdar fréttir

Atli vildi ekki rjúfa samstöðu

Atli Gíslason tók ekki afstöðu til þess hvort fara ætti fram rannsókn á einkavæðingu bankanna vegna þess að hann vildi ekki rjúfa samstöðu innan nefndarinnar. Það vakti athygli þegar skýrsla þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis að ekki náðst samstaða um það í nefndinni að slik rannsókn færi fram.

Alþingi má ekki vera verkfæri framkvæmdavaldsins

Meginniðurstöður þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis er að það þarf að auka sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdavaldinu og gera stjórnsýsluna faglegri. Alþingi má ekki vera verkfæri í höndum framkvæmdavaldsins. Þetta segir Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar. Umræða um skýrslu nefndarinnar hófst klukkan hálfellefu í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×