Innlent

Lög um fjármál flokka samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Flutningsmenn voru formenn flokkanna á þingi að undanskildum Hreyfingunni.

Á meðal helstu breytinga á lögunum má nefna að hámarksfjárhæð framlaga frá einstaklingum og lögaðilum hækkar í 400 þúsund krónur úr 300 þúsund krónum en um leið hefur svokallað nafnleyndargólf verið lækkað þannig að öll framlög einstaklinga hærri en 200 þúsund krónur verða gerð opinber.

Regla laganna um að öll framlög frá lögaðilum séu opinber stendur hinsvegar óbreytt. Frumvarpið var samþykkt með 37 greiddum atkvæðum. Tveir þingmenn Hreyfingarinnar voru á móti. 24 þingmenn voru fjarstaddir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×