Gjaldskrárhækkanir OR kosta borgarsjóð hundruð milljóna Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. september 2010 21:18 Sóley segir að rekstrarkostnaður borgarinnar vegna gjaldskrárhækkunar OR aukist verulega. Mynd/ GVA.
Rekstrarkostnaður Reykjavíkurborgar gæti aukist um hundruð milljóna króna vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitu Reykjavíkur, segir Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG. Sóley lagði, ásamt borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, fram fyrirspurn í borgarráði í dag um áætlaðan kostnaðarauka Reykjavíkurborgar vegna hækkana á gjaldskrá Orkuveitunnar. Óskuðu þau eftir því að fá áætlaðan kostnað sundurliðaðan á hvert svið borgarinnar og auk þess hvernig meirihlutinn hyggst mæta þessum kostnaðarauka. „Ég hef heyrt það áætlað að bara sundlaugarnar í Reykjavík komi til með að þurfa 36 milljónir árlega í viðbót vegna gjaldskrárhækkana Orkuveitunnar," segir Sóley. Hún bendir á að þar með séu allar aðrar stofnanir borgarinnar ótaldar. „Fólk áttar sig kannski ekki á því að við þurfum að bæði kynda og lýsa upp alla grunnskólana, öll listasöfnin, alla leikskólana og öll íþróttahús. Fyrir utan götulýsingu, sem er nú ekkert smáræði," segir Sóley. Það kæmi sér því ekki á óvart að aukinn kostnaður borgarinnar hlypi á hundruðum milljóna. „Þá velti ég fyrir mér hvort meirihlutinn hafi hugsað þetta mál til enda," segir Sóley. Aðspurð hvort þessar gjaldskrárhækkanir séu ekki bara leikur að tölum fyrir Reykjavíkurborg þar sem að borgin sé langstærsti eigandi OR og borgarsjóður hafi hingað til fengið greiddan arð frá fyrirtækinu segir Sóley að hagsmunir Reykjavíkurborgar sem eiganda og þjónustuþega verði að fara saman. Þá bendir hún á að lagt hafi verið til að borgarsjóður fái ekki greiddan arð frá Orkuveitunni í ár. Ákvörðun um það verði tekin á næsta eigendafundi OR.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira