Ekki hægt að loka bjarginu 18. júní 2010 04:00 Ein af fuglategundunum sem verpa í Látrabjargi.
Gísli Már Gíslason, formaður Bjargtanga – félags landeigenda og sumarbústaðaeigenda á Hvallátrum, segir félagið vera mjög hlynnt endurbótum á Látrabjargi en segir ómögulegt að loka því. „Þetta væri eins og að loka Gullfossi,“ segir Gísli. „Þetta snýst um að fræða fólk um hætturnar en ekki banna því að skoða náttúruminjar.“ Eitt varúðarskilti er á svæðinu og setti félagið það upp til aðvörunar fyrir ferðamenn. „Við erum tilbúnir að skoða alla möguleika til þess að gera svæðið sem öruggast,“ segir Gísli. Þingsályktunartillaga um friðlýsingu Látrabjargs var lögð fram á Alþingi árið 2003. Þetta er mesta fuglabjarg í N-Atlantshafi og þar er stærsta álkubyggð í heimi. Jafnframt vex á svæðinu sjaldgæf jurt, bjargstrý, sem hefur aðeins fundist á tveimur stöðum á landinu. Ekki hefur svæðið enn verið friðlýst. Sigrún Ágústsdóttir, sviðsstjóri laga og stjórnsýslu hjá Umhverfisstofnun, segir að það sé vissulega ástæða til að tryggja öryggi ferðamanna á öllum stöðum á landinu sem þykja áhugaverðir. „Það er verið að vinna í málinu og vonandi gengur það í gegn á næstu misserum,“ segir Sigrún. - sv
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Innlent Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Innlent Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Innlent „Þetta er ekki eiturgas“ Innlent Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Innlent Fleiri fréttir Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesi Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira