Fjölmiðlar heimsins fjalla meira um karla en konur 29. september 2010 10:51 Á myndinni eru nemendur og kennari í blaða- og fréttamennsku og kynjafræði við HÍ. Frá vinstri: Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, Hlíf Þorgeirsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir, Eygló Árnadóttir og Anna Lilja Þórisdóttir.
Konur eru 24 prósent þeirra sem fjallað er um eða talað við í fréttum heimspressunnar, en karlar 76 prósent. Hér á landi er hlutfall kvenna nokkru hærra en annars staðar, eða 28 prósent. Á hinum Norðurlöndunum er hlutfallið hinsvegar á bilinu 30-33 prósent. Niðurstöðurnar verða kynntar nánar á Þjóðarspeglinum 2010: Ráðstefnu í félagsvísindum XI, sem haldin verður föstudaginn 29. október 2010 við Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri rannsókn, Global Media Monitoring Project (GMMP) sem kynnt var í dag. Í rannsókninni voru helstu fréttamiðlar i 108 löndum vaktaðir þann 10. nóvember 2009 og meðal annars kannað hversu oft var talað við eða fjallað um konur, í hvers konar fréttum og í hvers konar hlutverkum. „GMMP er umfangsmesta og langlífasta rannsókn á hlut karla og kvenna i fréttum og hefur verið gerð á 5 ára fresti síðan 1995. Ísland tók nú fullan þátt í fyrsta skipti. Greindar fréttir í Ríkisútvarpinu, Stöð 2, Bylgjunni, Morgunblaðinu, Fréttablaðinu," segir í tilkynningu. Vefmiðlar voru hafðir með í fyrsta sinn í þetta skiptið og tóku 16 lönd þátt í því, þar á meðal Ísland en hér voru greindar fréttar í mbl.is, visir.is, pressan.is, dv.is, amx.is. „Niðurstöður hvað vefmiðla varðar voru hins vegar ekki sundurliðaðar á sama hátt og fyrir hefðbundna miðla og eru ekki með í samantektinni hér fyrir neðan," segir ennfremur.Helstu niðurstöður hvað varðar prentmiðlar, úrtvarp og sjónvarp fara hér á eftir: • Konur eru 28% þeirra sem talað er við eða fjallað um fréttum hér á landi, en karlar 72%, en í heimspressunni eru samsvarandi hlutföll að jafnaði 24% konur og 76% karlar. Konur koma hins vegar heldur minna við sögu í fréttum hér landi en annars staðar á Norðurlöndum þar sem þær eru 30-33% þeirra sem rætt er við eða fjallað um. • Þriðjungur (33%) fréttanna í íslensku fjölmiðlunum eru sagðar eða skrifaðar af konum og 67% af körlum. Fréttakonur flytja samkvæmt því hlutfallslega færri fréttir hér á landi en að jafnaði í þeim 108 löndum sem könnunin náði til. Þar eru samsvarandi hlutföll 37% konur og 63% karlar. Í Svíþjóð er rétt rúmur helmingur fréttanna eftir fréttakonur, í Finnlandi 40% og 30% í Noregi og Danmörku. • Fréttakonur á íslenskum fjölmiðlum eru ekki líklegri en fréttakarlar til að tala við eða fjalla um konur. Í 23% frétta eftir konur var talað við eða fjallað um konur og í 22% frétta eftir karla. Í fjölmiðlum landanna 108 eru fréttakonur hins vegar að jafnaði líklegri til að tala við eða fjalla um konur. Þar eru samsvarandi hlutföll 28% og 22%. • Tæp 40% íslensku fréttanna voru taldar styrkja hefðbundnar staðalmyndir kynjanna, 13% ögra staðalmyndum en tæpur helmingur var hvorki talin styrkja né ögra staðalmyndum. • GMMP rannsóknir hafa bent til þess að konur væru fremur umfjöllunarefni eða viðmælendur í fréttum um t.d. dægurmál, heilbrigðis- eða félagsmál, en síður í því sem gjarnan eru kallaðar harðar fréttir, eins og um pólitík, efnahagsmál og glæpi og afbrot. Ekki fundust skýrar vísbendingar um það í íslensku fréttunum. Konur voru t.d. viðmælendur í 33% frétta um afbrot og ofbeldi og í 29% frétta um pólitík eða í nokkru fleiri fréttum en ætla mætti út frá heildarfjölda þeirra í fréttum almennt. Hafa verður þann fyrirvara á að fréttaflokkarnir eru grófir og verið getur að önnur kynjaskipting komi í ljós ef fréttirnar eru sundurgreindar nánar. • Ekki var heldur að sjá að fréttakonur hér á landi fjölluðu síður um „hörð" mál en fréttakarlar. Þannig segja/skrifa fréttakonur 4 af hverjum 10 fréttum um efnahagsmál þótt þær séu mun færri en karlarnir. Hér verður hins vegar einnig að setja þann fyrirvara að fréttaflokkarnir eru grófir og verið getur að önnur kynjaskipting komi í ljós ef fréttirnar eru sundurgreindar nánar.Helstu niðurstöður hvað varðar vefmiðla eru þessar: • Hlutur kvenna og karla í veffréttum er mjög áþekkur því sem gerist í hefðbundnum miðlum. Tæpur fjórðungur (23%) þeirra sem tala er við eða fjallað um í veffréttum er konur og 77% karlar. • Fréttakonur skrifuðu 36% vefréttanna, karlar 64%. • Aðeins 4% vefrétta voru taldar ögra eða ganga gegn hefðbundnum staðalmyndum kynjanna, 42% styrktu staðalmyndir og 54% gerðu hvorugt.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira