Innlent

Styttist í svör frá Alþingi í lánamálinu

Það ætti nú að styttast í að fjölskyldur í landinu fái svör við því hvort og þá hvernig gengistryggð lán verða endurreiknuð. Frá því Hæstaréttardómur féll í bílálánamálinu þann 16. september hefur ekkert annað komist að í sölum Alþingis en málshöfðun gegn fyrrverandi ráðherrum. Nýtt þing hefst í vikulok.

Að loknum hefðbundnum formsatriðum, stefnuræðu forsætisráðherra og fjárlögunum, ætti Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, að gefast tækifæri til að mæla fyrir frumvarpi sem felur það í sér að dómurinn í bílamálinu verður notaður til að endurreikna öll gengistryggð lán fjörutíu þúsund heimila.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×