Innlent

Ofbeldismaðurinn með fortíð

Karlmaður um þrítugt, sem var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að hafa ruðst inn í íbúð fyrrverandi sambýliskonu sinnar í Hveragerði á mánudagsmorgun og veitt henni áverka, hefur áður gerst brotlegur við lög og hlotið dóma, meðal annars fyrir ofbeldi.

Réttarmeinafræðingur, sem skoðaði konuna eftir að hún var flutt á slysadeild, telur að konan hafi hlotið áverka af barefli, en ekki liggur fyrir hvers kyns það var. Hún er ekki alvarlega meidd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×