Innlent

Lýst eftir Andrési

Andrés Tómasson.
Andrés Tómasson.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Andrési Tómassyni, 41 árs, en ekkert er vitað um ferðir hans frá síðastliðnum föstudegi, 24. september.

Andrés, sem er til heimilis að Hólmgarði 38 í Reykjavík, hefur yfir að ráða bifreiðinni LZ-195, sem er Suzuki Grand Vitara ljósbrún að lit.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Andrésar eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×