Ólögráða afpláni fangelsisrefsingu á meðferðarheimilum 9. júní 2010 18:39 Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Vinnuhópur sem Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipaði til að skoða fyrirkomulag við vistun fanga á aldrinum 15-18 ára leggur til að sakhæf börn, sem dæmd hafa verið í óskilorðsbundna fangelsisrefsingu, afpláni fangelsisrefsingu á meðferðarheimilum á vegum Barnaverndarstofu, segir í tilkynningu. Þá verði rýmum á lokaðri deild í neyðarvistun Barnaverndarstofu fjölgað fyrir gæsluvarðhaldsfanga sem eru ekki í einangrun. Sérstök eining verði búin til á einu af meðferðarheimilum Barnaverndarstofu sem myndi uppfylla skilyrði Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Vinnuhópurinn telur ekki fýsilegt að setja á laggirnar sérstakt unglingafangelsi eða útbúa sérstaka einingu innan fangelsa landsins, m.a. í ljósi þess hversu fá börn undir 18 ára aldri séu dæmd í óskilorðsbundið fangelsi hér á landi. Slík úrræði yrðu óhagstæð bæði út frá hagsmunum fanga undir lögaldri og fjárhagslegum sjónarmiðum. Í skýrslu sinni kemur hópurinn með tillögur að fyrirkomulagi er fullnægir þeim skilyrðum sem sett eru í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins um vistun ungra fanga til að hægt sé að lögfesta samninginn og falla frá yfirlýsingu sem Ísland gaf út við undirritun hans. Vinnuhópurinn, sem hóf störf í nóvember 2009, var skipaður þeim Skúla Þór Gunnsteinssyni, lögfræðingi í dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, sem jafnframt var formaður, Braga Guðbrandssyni, forstjóra Barnaverndarstofu, og Erlu Kristínu Árnadóttur, lögfræðingi hjá Fangelsismálastofnun ríkisins. Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu, sat fundi vinnuhópsins fyrir hönd Braga Guðbrandssonar. Hópurinn lauk störfum 31. maí 2010.
Mest lesið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Innlent Kristrún missti af fundi með Selenskí Erlent Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Erlent Bíll valt í Kópavogi Innlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Sjá meira