Innlent

Telur óskynsamlegt að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka

Róbert Hlöðversson, bæjarfulltrúi A-listans. A-listinn er í minnihluta í Hveragerði.
Róbert Hlöðversson, bæjarfulltrúi A-listans. A-listinn er í minnihluta í Hveragerði.
Meirihluti Bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar hefur óskað eftir að hefja viðræður við Orkuveituna um að kaupa Hitaveitu Hveragerðis til baka á sanngjörnu verði. Minnihluti bæjarstjórnar telur óskynsamlegt að bæjarfélagið skuldsetji sig enn frekar.

Tillagan var samþykkt á bæjarstjórnarfundi á fimmtudaginn.

Bæjarstjóri, forseti bæjarstjórnar og lögmaður hefja nú viðræður við stjórn Orkuveitu Reykjavíkur til að kanna grundvöll þess að Hitaveitunni verði skilað aftur til Hvergerðinga gegn eðlilegu endurgjaldi, eins og það er orðað í fundargerð Sjálfstæðismanna.

Hitaveitan var seld til Orkuveitunnar sumarið 2004, en salan var umdeild á sínum tíma. Í greinargerð meirihluta bæjarstjórnar segir að með fordæmalausri ákvörðun um hækkun á heitu vatni um 35% sé Orkuveitan að varpa ábyrgðalausri skuldasöfnun sinni yfir á íbúa Hveragerðisbæjar, sem engan þátt hafi átt í henni. Meirihlutinn telur að hagsmunir bæjarbúa hafi verið gróflega fyrir borð bornir með sölunni á sínum tíma og vill fá Hitaveituna aftur í eigu bæjarins. Hveragerðisbær hefur forkaupsrétt komi til sölu á Hitaveitunni frá Orkuveitu Reykjavíkur.

Ábyrgðarleysi að skuldsetja bæjarfélagið

Minnihlutinn í bæjarstjórn sat hjá í atkvæðagreiðslunni og telur að sjálfstæðismenn sýni mikið ábyrgðaleysi að ætla að skuldsetja bæjarfélagið enn frekar með kaupum á hitaveitunni.

„Við erum að nálgast eða sennilega komin yfir hlutfallið sem að eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga hefur sett varðandi skuldsetningu sveitarfélaga," segir Róbert Hlöðversson, fulltrúi A-listans í bæjarstjórn Hveragerðis.

Skuldir bæjarins nemi 165% af árstekjum. „Við erum að greiða sama verð fyrir orkuna og í Reykjavík og við teljum ekki ástæðu til þess að kaupa þessa hitaveitu á þeim forsendum, að við sjáum fram á að bæjarbúar fái lægra orkuverð," segir Róbert.


Tengdar fréttir

Vilja kaupa hitaveitu til baka

Bæjarstjórn Hveragerðis vill kaupa til baka hitaveitu bæjarins sem seld var Orkuveitu Reykjavíkur árið 2004.

Hvergerðingar vilja kaupa hitaveituna af OR

Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis vill hefja viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um að kaupa aftur Hitaveitu Hveragerðis sem Orkuveitan keypti árið 2004. Bæjarstjóri Hveragerðis segir það óásættanlegt að íbúar Hveragerðis þurfi að taka á sig gjaldskrárhækkanir til að greiða niður óráðsíu í rekstri Orkuveitunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×