Vilja rýmka heimildir varðandi brot á virðisaukaskattskilum 2. júlí 2010 13:00 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Nýverið var fallið frá kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Jóns Sigurðssonar og Hannesar Smárasonar eftir að Hæstiréttur felldi úr gildi kyrrsetningu á eignum fjórða mannsins, Skarphéðins Bergs Steinarssonar. Eignir fjórmenninganna voru kyrrsettar vegna meintra brota FL Group á lögum um virðisaukaskatt og var það talið í samræmi við nýja lagaheimild í tekjuskattslögum um að heimilt sé að kyrrsetja eignir til að tryggja að menn borgi virðisaukaskatt. Þegar Skarphéðinn fór með kyrrsetninguna fyrir dómstóla komst Hæstiréttur hins vegar að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að heimildin í tekjuskattslögum næði ekki yfir virðisaukskatt. Fréttastofa innti fjármálaráðherra eftir því hvort til stæði að rýmka þessar heimildir svo þær tækju einnig til brota á virðisaukaskattskilum. „Hæstiréttur hefur túlkað það þannig að það sé ekki nóg að hafa þessa sjálfstæðu heimild á einum stað í lögum, heldur þurfi að tilgreina hana í lögum um einstaka skattstofna og þá verður það að sjálfsögðu gert. Það er eindreginn ásetningur okkar að skattayfirvöld hafi þessar heimildir, þannig við gerum ráð fyrir því að leggja það fyrir þing í haust," segir Steingrímur. Rétt er að geta þess að þótt þessi tiltekna kyrrsetning hafi verið felld úr gildi - þá hafa eignir Jóns Ásgeirs, meðal annars húseignir, glæsibifreiðar, jarðir og bankainnistæður, verið kyrrsettar vegna annarra mála - en honum og Pálma Haraldssyni er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína sem stórir eigendur Glitnis til að hagnast persónulega um tvo milljarða króna.
Mest lesið Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Erlent Fleiri fréttir Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Sjá meira