Innlent

Skiptar skoðanir um endurkomu Björgvins

Höskuldur Kári Schram skrifar

Skiptar skoðanir eru innan þingflokks Samfylkingarinnar um endurkomu Björgvin G. Sigurðsson á þing. Þrír þingmenn flokksins greiddu atkvæði með ákæru á hendur þessum flokksbróður sínum.

Þingflokkur Samfylkingarinnar kom saman til fundar í dag í fyrsta skipti eftir atkvæðagreiðsluna á þriðjudag. Björgvin G. Sigurðsson mætti ekki en hann tók að nýju sæti á Alþingi í gær.

Rannsóknarnefnd Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að Björgvin hefði gerst sekur um vanrækslu í störfum sínum sem viðskiptaráðherra aðdraganda hrunsins.

Björgvin ákvað að víkja tímabundið af þingi í vor á meðan þingmannanefnd Atla Gíslasonar fjallaði um málið.

Fimm nefndarmenn af níu í Atlanefnd lögðu það til að Björgvin yrði ákærður en sú tillaga var felld með 35 atkvæðum gegn 27. Þrír þingmenn samfylkingarinnar studdu tillöguna og einn sat hjá.

Skiptar skoðanir eru innan þingflokks Samfylkingarinnar um endurkomu Björgvins. Þeir samfylkingarmenn sem fréttastofa ræddi við í dag segja að þetta sé óheppilegt og kunni jafnvel að hafa neikvæð áhrif á flokkinn.

Einn áhrifamaður innan samfylkingarinnar sagðist efast stórlega um að Björgvin hefði þá pólitíska stöðu til að taka sæti á Alþingi á ný.

Fréttastofa hefur ítrekað reynt að ná tali af Björgvini undanfarna tvo daga en án árangurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×