Kreppa áfram spýti ríkisstjórnin ekki í lófana 12. febrúar 2010 19:16 Vilhjálmur Egilsson. MYND/AP
Mikið atvinnuleysi, léleg lífskjör og versnandi velferðarkerfi verða hlutskipti Íslendinga um langa framtíð nema ríkisstjórnin spýti í lófana, segja Samtök atvinnulífsins. Þau gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir dugleysi og rangar ákvarðanir og segja að fimm prósenta árlegan hagvöxt þurfi til að vinna þjóðina út úr kreppunni. Forystumenn Samtaka atvinnulífsins hvetja til þess að blásið verði til sóknar í atvinnumálum og kynntu í því skyni í dag ítarlega áætlun um uppbyggingu atvinnulífsins. Þeir telja að aðgerðarleysi og rangar ákvarðanir stjórnvalda leiði til versnandi lífskjara, með atvinnuleysi, vaxandi halla á ríkissjóði og undanhaldi í velferðarkerfinu. En svona þurfi þetta ekki að fara. Þeir telja að þjóðin geti náð aftur fyrri lífskjörum en þá dugi ekki markmið um tveggja prósenta árlegan hagvöxt. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að við verðum að spýta í lófa og auka fjárfestingarnar, fyrst og fremst í útflutningsgreinum, og ná fyrri lífskjörum til baka með fimm prósenta hagvexti á ári næstu fimm árin. Þeir segja að innspýtingu þurfi í allan atvinnurekstur með vaxtalækkun. Það vanti dirfsku og ákveðni í ríkisstjórnina. Ekkert hafi ennþá gerst í því að koma opinberum framkvæmdum eins og vegagerð í gang. Ríkisstjórnin vinni jafnvel gegn meginmarkmiðum stöðugleikasáttmálans. „Til dæmis umhverfisráðherrann, sem virðist vera á móti framförum," segir Vilhjálmur. Þá segir hann gjaldeyrishöftin hamla gegn styrkingu krónunnar og kveðst þess fullviss að ef þau hefðu aldrei verið sett á væri gengi krónunnar hærra en það nú er. Ríkisstjórnin kynnti í hádeginu það sem hún kallar „fjölþættar aðgerðir í atvinnumálum með áherslu á nýsköpun". Þar eru helstu nýmæli ákvörðun um að auka eigið fé Byggðastofnunar um 3,6 milljarða króna til atvinnuuppbyggingar og áform um allt að 700 milljóna skattlagningu á ferðamenn til að byggja upp ferðamannastaði.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Sjá meira