Man ekki eftir jafn ömurlegu máli á 30 ára starfsferli

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir að búið sé að semja við sálfræðing sem muni hafa umsjón með meðferðarúrræðinu. Þetta verkefni hafi verið í undirbúningi frá því í haust og muni hefjast innan tíðar.
Meðferðarúrræðin verða bætt
„Að mínu mati kom það mjög sterkt í ljós í framhaldi af þessu máli hversu fátækleg meðferðarúrræði eru í boði fyrir börn sem sætt hafa svona alvarlegu líkamlegu ofbeldi. Viðeigandi meðferð var ekki tiltæk og á því verður núna gerð bót," segir Bragi.
Bragi segist hafa unnið að barnaverndarmálum í þrjátíu ár. Hann hafi séð ýmislegt í tengslum við kynferðisofbeldi. Hann muni hins vegar ekki eftir jafn ömurlegu máli og þessu hvað varðar líkamlegt ofbeldi. Til marks um það sé óskaplega fátítt, eins og fram komi í dómnum, að börnum sé það stórkostlegur léttir að vera laus frá foreldri sínu. „Það er mjög sjaldgæft og segir sína sögu um það hvað þetta hefur verið hrikaleg lífsreynsla fyrir börnin," segir Bragi.
Mikilvægt að vinna traust barna
Bragi segir að málið sýni mikilvægi þess að barnaverndarstarfsmenn og aðrir sem vinni með börnum, hvort sem það er á vettvangi skóla eða heilbrigðisþjónustu, reyni að ná til barna, ræði við börn, hlusti á börn og vinni traust þeirra. „Það er kannski það besta sem við getum gert," segir Bragi.
Bragi segir að málið sé dæmi um fjölskylduleyndarmál sem einkenni alkahólisma og fíknisjúkdóma af ýmsu tagi. „Börnin reyna eftir föngum að verja foreldri sitt þó að það sé fársjúkt og það er ekki fyrr en það er komið í algjört öngstræti og það er farið að óttast um líf sitt að það er farið að kalla eftir hjálp," segir Bragi.
Bragi segir að það sé ýmislegt sem megi draga lærdóm af í tengslum við þetta mál. Þeirri yfirferð sé ekki lokið.
Tengdar fréttir

Notuðu barn sitt sem hnífaskotskífu
Rannsókn stendur yfir á máli þriggja barna á höfuðborgarsvæðinu sem sætt hafa alvarlegu ofbeldi af hálfu foreldris. Meðal annars hefur eitt þeirra verið notað sem hnífaskotskífa.

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir hrikalegt ofbeldi gegn eigin börnum
Hæstiréttur Íslands þyngdi dóm yfir karlmanni sem misþyrmdi börnum sínum hrottalega frá sumri 2005 til febrúar 2008. Maðurinn kastaði meðal annars hníf í læri sonar síns. Málið vakti mikla athygli þegar greint var frá því að hann hefði kastað hníf í son sinn. Uppskar hann þá viðurnefnið hnífakastarinn.

Aðalmeðferð í máli ofbeldisfulls föður
Aðalmeðferð fór fram í máli þriggja barna föður á höfuðborgarsvæðinu sem sakaður hefur verið um hrottalegt ofbeldi gagnvart þremur börnum sínum. Mál mannsins komst í hámæli síðastliðið haust þegar að fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis sagði frá máli mannsins en hann hefur meðal annars verið sakaður um að nota eitt barna sinna sem hnífaskotskífu.

Rannsókn lokið á máli ofbeldisfulls föður
Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið við rannsókn á máli föður á höfuðborgarsvæðinu, sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín ofbeldi. Hann er meðal annars grunaður um að hafa notað eitt þeirra sem hnífaskotskífu.

Hnífakastarinn ákærður
Búið er að gefa út ákæru á hendur þriggja barna föður sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi.