Innlent

Húsleitir standa yfir í Banque Havilland í Lúxemborg

Kaupþing í Lúxemborg nú Banque Havilland.
Kaupþing í Lúxemborg nú Banque Havilland.

Húsleitir standa nú yfir í Banque Havilland í Lúxemborg, sem áður var dótturfélag Kaupþings í Lúxemborg, vegna rannsóknar á málefnum tengdum Kaupþingi.

Það er sérstakur saksóknari, sem stendur á bak við aðgerðirnar en þær eru umfangsmiklar.

Ekki er vitað hvaða máli húsleitirnar tengjast en bankinn hefur sætt rannsókn sérstaks saksóknara vegna gruns um markaðsmisnotkun.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×