Leik- og grunnskóli undir sama þaki í Úlfarsárdal 12. febrúar 2010 09:37 Úr safni.
Borgarráð samþykkti einróma á fundi sínum í gær að stofna skóla í Úlfarsárdal sem sameinar undir einu þaki leikskóla og grunnskóla ásamt frístundastarfi fyrir börn frá eins árs aldri til tólf ára. Áherslur í starfseminni verða listir og lýðheilsa, umhverfismennt og læsi. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sér mörg tækifæri opnast með stofnun nýja skólans í Úlfarsárdal. „Þessi tilraun, að reka saman leikskóla, grunnskóla og frístundaheimili undir einu þaki miðar að því að auka sveigjanleika í skólastarfi og það sem er ekki síst mikilvægt; skóladagurinn verður heildstæðari hjá börnunum. Þetta fyrirkomulag eykur auk þess hagkvæmni í rekstri og mun vonandi nýtast okkur vel við að móta framtíðarskipulag í skólastarfi í Reykjavík," er haft eftir Hönnu Birnu á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir að einn faglegur og rekstrarlegur stjórnandi verði ráðinn að skólanum, sem skipuleggur innra starf samkvæmt lögum, reglugerðum og námskrám fyrir leik- og grunnskóla og samþykktum um rekstur frístundaheimila, í samstarfi foreldra. Nýi skólinn mun mæta þörfum margra barna en í dag eru 65 börn úr hverfinu í leik- og grunnskólum í öðrum hverfum. Áhersla verður lögð á að íbúar, fullorðnir jafnt sem börn, hafi aðkomu að undirbúningi nýja skólans. Skólinn tekur til starfa haustið 2010 í húsnæði leikskólans í Úlfarsárdal. Þegar grunnskólahúsnæðið verður tilbúið verður það nýtt fyrir sameinaðan skóla ásamt leikskólahúsnæðinu. Frá hausti 2010 verða í skólanum nemendur frá eins árs til tíu ára og síðan bætist við einn árgangur árlega.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Fleiri fréttir „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar Sjá meira