Spyr um lagagrundvöll orkunefndar 27. september 2010 04:30 Umboðsmaður Alþingis hefur gert athugasemdir við aðkomu ríkisstjórnarinnar að sölunni á HS Orku. Fréttablaðið/Valli
Umboðsmaður Alþingis setur spurningar við lögmæti nefndar um orku- og auðlindamál sem fjallaði um kaup Magma Energy Sweden á hlut Geysis Green Energy í HS Orku. Forsvarsmenn Geysis Green kvörtuðu til umboðsmanns vegna inngripa ríkisstjórnar og yfirlýsinga hennar í málinu. Nefndin var sett saman í sumar til að meta hvort kaupin stæðust íslensk lög sem og samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Umboðsmaður hefur nú sent erindi til forsætisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra þar sem hann gerir margvíslegar athugasemdir við framgöngu stjórnvalda í málinu. Í greinargerð rifjar umboðsmaður upp meðferð nefndar um erlenda fjárfestingu, sem úrskurðaði tvisvar að kaup Magma á hlutum í HS Orku stæðust lög. Spyr hann meðal annars hvaða lagagrundvöllur liggi á bak við stofnun orku- og auðlindanefndarinnar þar sem viðskiptin hafi þegar fengið afgreiðslu af þar til bærum stjórnvöldum og ráðherra. Þá spyr hann einnig hvers vegna sú nefnd sé sett undir forsætisráðherra, en ekki efnahags- og viðskiptaráðherra, sem þó hafi forræði í málefnum erlendra fjárfestinga. Segja má að grundvallaratriðið í athugasemdum umboðsmanns sé hvort vandaðir stjórnsýsluhættir hafi verið í fyrirrúmi í afgreiðslu málsins, og tekur Alexander K. Guðmundsson, forstjóri Geysis Green, undir það. „Ég held að við sem þegnar eigum að geta gengið út frá því að ef stjórnvöld afgreiða mál með einhverjum hætti þá sé sú afgreiðsla endanleg. Það sé ekki dregið til baka nema það séu einhverjir verulegir hagsmunir í húfi fyrir ríkið.“ Alexander segir að tafirnar sem hafa orðið á málinu gætu valdið Geysi Green töluverðu tjóni. Útilokar hann ekki að fyrirtækið muni leita réttar síns þegar málinu lýkur loks. „Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gætu valdið okkur miklu tjóni og við þurfum að leita allra leiða til að koma í veg fyrir það. Ein af leiðunum sem við höfðum var að biðla til umboðsmanns um að hann kannaði lögmæti þessara inngripa.“ Umboðsmaður hefur gefið ráðuneytunum frest til 15. september til að svara fyrirspurnunum. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Sjá meira