Ekki svigrúm til að fækka kennurum þrátt fyrir fjölgun 29. desember 2010 11:59 Eiríkur Jónsson. Mynd/Anton Brink
Grunnskólakennurum fjölgaði um 43% á tíu ára tímabili, en á sama tíma fjölgaði nemendum aðeins um tæp 3%. Formaður Kennarasambandsins segir þetta ekki þýða að svigrúm sé til að fækka kennurum. Talsvert svigrúm er talið vera til hagræðingar í grunnskólum landsins. Í greinargerð menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að stöðugildum kennara við grunnskóla hafi fjölgað um 43% frá árinu 1998 til 2008. Á sama tíma fjölgaði nemendum um 2,6%. Frá 2003 til 2008 fjölgaði stöðugildum kennara um 13% en nemendum fækkaði um 3%. Þá kemur fram að kostnaður við grunnskólarekstur á Íslandi sé hærri en í öðrum löndum OECD. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir að árið 1992 hafi verið framkvæmdur mikill niðurskurður í grunnskólum. „Með grunnskólalögunum 1995 var ákveðið að skila þessu til baka í áföngum og því lauk ekki fyrr en upp úr aldamótum. Töluvert af kostnaðaraukanum má rekja til þess." Í sömu lögum hafi verið ákveðið að einsetja alla grunnskóla, það hafi leitt til mikillar fjölgunar stöðugilda. Áður hafi kennarar kennt tveimur bekkjum og verið með mikla yfirvinnu. Nú sé sú yfirvinna horfin og það komi fram í fjölgun kennara. Eiríkur segir dýrt að reka skóla í strjábýlu landi þar sem kjörorðið er skóli fyrir alla. Metnaður samfélagsins hafi verið í þá átt að halda uppi skólum alls staðar á landinu, og án aðgreiningar, og það kosti sitt. Aðspurður segir Eiríkur ekki nægt svigrúm til að fækka kennurum. „Nei, ef menn vilja stíga til baka langt aftur í tímann og taka upp geturöðun í bekki og þess háttar sem ég held að enginn núlifandi Íslendingur vilji sjá gerast. Það er ekki eitthvað sem á að bjóða upp á á 21. öldinni."
Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Fleiri fréttir Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Sjá meira