Steingrímur segir ekkert hæft í sögu um samstarf við Framsókn Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. desember 2010 12:00 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna. „Undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt, segir hann um hugsanlegt samstarf við Framsóknarflokkinn.
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að viðræður séu hafnar við Framsókn um að ganga inn í stjórnarsamstarfið og segir undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þá kallar formaður Framsóknar fréttirnar „spuna." Í gærkvöldi birtust fréttir þess efnis að Framsóknarflokknum hefði verið boðið nýtt atvinnuvegaráðuneyti sem tekur til starfa 1. mars næstkomandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir fréttir þess efnis. „Nú eru einhverjir alveg að missa sig í spunanum. Búinn að sjá nokkrar furðufréttir," skrifar formaðurinn á vefsíðu sína á Facebook. „Ég kannast alls ekki við þetta og það eru engar viðræður í gangi svo ég viti til," sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins við fréttastofuna í morgun. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir jafnframt ekkert hæft í þeim fréttum að viðræður séu hafnar við Framsóknarflokkinn. „Undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt" „Nei, það er bókstaflega ekkert hæft í því, enda eru það nú ekki hlutir sem menn fíflast eitthvað með eða taka af léttúð. Ef menn fara í viðræður um samstarf þá er það formlegur prósess þar sem að menn þurfa umboð frá stofnunum viðkomandi flokka. Og það er ekkert slíkt á döfinni og undarlegt að menn séu að kjafta um slíkt. Þannig að það er einfalt svar, engar slíkar viðræður í gangi," segir Steingrímur. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru fréttirnar um samstarf við Framsóknarflokkinn sprottnar af samtölum milli þingmanna, en einhverjir stjórnarþingmenn hafa af því áhyggjur að stjórnin standi tæpt eftir að þrír þingmenn sátu hjá við afgreiðslu fjárlaga. Tveir þingmannanna, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason, hafa hins vegar lýst því yfir að þeir verji ríkisstjórnina vantrausti. Með stuðningi þeirra er ríkisstjórnin með stuðning þrjátíu og þriggja þingmanna, sem er þriggja þingmanna meirihluti. Nokkur erfið mál bíða afgreiðslu þingsins, m.a Icesave-málið en fyrstu umræðu um málið lauk hinn 16. desember sl. og verður málið til umfjöllunar í fjárlaganefnd þegar þingið kemur saman í upphafi nýs árs.
Tengdar fréttir Framsóknarflokknum boðið atvinnumálaráðuneyti Þingmenn innan Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, hafa boðið Framsóknarflokknum nýtt atvinnumálaráðuneyti, sem verður til við lagabreytingu 1. mars næstkomandi, gangi Framsókn inn í viðkvæmt meirihlutasamstarf. 28. desember 2010 20:54 Framsókn mun ekki taka þátt í núverandi stjórnarsamstarfi Hugsanleg þátttaka Framsóknarflokksins í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi hefur ekki verið rædd á milli flokka, segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. 28. desember 2010 10:48 Mest lesið Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Fleiri fréttir Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Sjá meira
Framsóknarflokknum boðið atvinnumálaráðuneyti Þingmenn innan Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, hafa boðið Framsóknarflokknum nýtt atvinnumálaráðuneyti, sem verður til við lagabreytingu 1. mars næstkomandi, gangi Framsókn inn í viðkvæmt meirihlutasamstarf. 28. desember 2010 20:54
Framsókn mun ekki taka þátt í núverandi stjórnarsamstarfi Hugsanleg þátttaka Framsóknarflokksins í núverandi ríkisstjórnarsamstarfi hefur ekki verið rædd á milli flokka, segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. 28. desember 2010 10:48