Innlent

Einsdæmi að ráðist sé á kirkju við guðsþjónustu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir að það sé einsdæmi að friður sé rofinn við guðsþjónustu. Mynd/ Hari.
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur segir að það sé einsdæmi að friður sé rofinn við guðsþjónustu. Mynd/ Hari.
Það er einsdæmi í sögunni að friður sé rofinn við guðsþjónustu, eins og gerðist í dag, segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur í samtali við Vísi. Alþingi var sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag. Fjölmenn og hávær mótmæli voru á Austurvelli á meðan og tvær rúður í kirkjunni voru brotnar.

„Það hefur aldrei gerst í sögunni að ráðist hafi verið að kirkju undir guðsþjónustu, hér á landi og mér er til efs að það hafi gerst í nágrannalöndunum heldur," segir Hjálmar. Hann segir að sendimenn erlendra ríkja, sem viðstaddir voru, hafi einnig minnst á að þetta væri einsdæmi. Hjálmar segir það fámennan hóp sem gangi svo langt að ráðast að kirkjunni.

Hjálmar segist á hinn bóginn verða var við það í sínu starfi að margt fólk sé orðið afar þreytt á því ástandi sem hér hefur ríkt og sumstaðar sé örvænting. „Ég tel mig skynja það vel og hef einnig bein dæmi um það undanfarið að fólk er komið að niðurlotum. Það koma fréttir um 9,5 milljarða króna hagnað eins af bönkunum fyrri hluta ársins, en á sama tíma er fólk að missa aleigu sína vegna þess að sami banki gengur hart fram í innheimtunni. Fólk stendur uppi á miðjum aldri eða jafnvel hætt störfum og eftir ævistarfið er ekkert eftir. Það er ekkert óeðlilegt að fólk verði örvæntingarfullt. Þessu höfum við verið að fylgjast með undanfarið. Fólk kemur til mín í þessari aðstöðu og það er erfitt að hafa engin svör," segir Hjálmar. Í því sé þetta tákn, þessi skilaboð frá fólki að henda lyklum í kirkjuna og þinghúsið. Fólk sé búið að missa húsið eða bílinn.

Hjálmar segir að Alþingis bíði nú það hlutverk að leysa úr hinum erfiðustu málum. „Verkefni alþingismanna er að finna þær lausnir og þær leiðir sem duga. Það þýðir ekki að segja fólki að vera rólegt þegar það er á barmi gjaldþrots eða komið í gjaldþrot. Þegar framtíðarsýnin er engin þá þýðir ekkert að segja að þetta lagist með tímanum," segir Hjálmar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×