Geir Waage: Ríkari trúnaðarskylda gildir um presta 23. ágúst 2010 08:37 Séra Geir Waage segir ríkari trúnaðarskylda gildir um presta.
Geir Waage, prestur í Reykholti segir að tilkynningaskylda presta hafi litla raunhæfa þýðingu því án trúnaðar verði prestum aldrei trúað fyrir nokkru. Hann segir ríkari trúnaðarskyldu lagða á presta. Þetta kemur fram í grein sem Geir ritar í Morgunblaðið í dag. Í annarri grein fyrir helgi sagði Geir að þagnarskylda presta væri hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og sá Karl Sigurbjörnsson, biskup, ástæðu til að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem hann mótmælti ummælunum. Það hafa fleiri prestar gert og jafnframt kallað eftir því að biskup leysti Geir frá störfum. Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en tilefnið segir Ragna vera ummæli Geirs. Geir segir í grein sinn í dag augljóst að prestum hvíli sú meginskylda að verja þá sem eru varnarlausir. „Eitt það úrræði sem við prestar höfum til þess að hjálpa brotaþolum, er að geta talað við brotamenn í trúnaði og þannig reynt að hjálpa þeim til að gangast við brotum sínum og láta af þeim. Ef það að tala við prest er í huga brotamanns það sama og að tala við lögregluna, þá mun hann ekki leita til prestsins,“ segir Geir.Óheimilt að vitna í lokuðu þinghaldi Þá bendir Geir á að í nýlegum lögum um meðferð sakamála sé lögð ríkari trúnaðarskylda á presta, forstöðumenn trúfélaga og verjendur en aðrar stéttir. „Samkvæmt lögunum er dómara heimilt að skylda lækna, endurskoðendur, fjelagsráðgjafa, sálfræðinga og aðra til þess að upplýsa um það sem skjólstæðingur hefur trúað þeim fyrir, en sjerstakt bann lagt við því að prestar vitni um slíkt. Þannig er prestum fortakslaust bannað, jafnvel í lokuðu þinghaldi, að skýra frá því fyrir dómi sem ákærður maður hefur trúað þeim fyrir um málsatvik.“
Tengdar fréttir Dómsmálaráðherra fundar með biskupi Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. 23. ágúst 2010 06:45 Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Fleiri fréttir Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Sjá meira
Dómsmálaráðherra fundar með biskupi Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra, fundar í dag með Karli Sigurbjörnssyni biskupi um málefni þjóðkirkjunnar. Tilefnið segir Ragna vera þau ummæli Geirs Waage, sóknarprests í Reykholti, að þagnarskylda presta sé hafin yfir landslög, jafnvel í tilfelli kynferðisbrota gegn börnum. 23. ágúst 2010 06:45