Innlent

Hætta í Gettu betur verði ekki haldin árshátíð

Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameistara um að fella niður fyrirhugaða árshátíðarferð. Mótmæli standa nú yfir og íhugar nemendafélagið að draga lið skólans úr Gettu betur verði kröfum þeirra ekki mætt.

Árshátíð nemenda við Fjölbrautarskólann í Breiðholti hefur síðustu ár verið með þeim hætti að farið hefur verið út fyrir höfuðborgina til þess að skemmta sér. Í ár var ætlunin að fara á Selfoss en skólameistari hefur nú blásið ferðina af. Nemendur eru afar ósáttir með þessa ákvörðun og hafa einhverjir nemendur tekið sig til í morgun og mótmælt ákvörðuninni með því að skrópa í tímum.

Formaður árshátíðarnefndar segir að jafnvel hafi verið rætt um að draga lið Fjölbrautarskólans úr spurningakeppninni Gettu Betur verði ekki gengið að óskum nemenda, en árshátíðin á að fara fram þann 4.mars.

Í bréfi sem skólameistarinn sendir nemendum vegna málsins segir að skólayfirvöld geti ekki ábyrgst slíkt skemmtanahald tengt gistingu hluta nemendahópsins á hóteli og fjarri heimahúsum þar sem foreldrar geti ekki sinnt eftirlitsskyldu sinni með fullnægjandi hætti.

Þá segir að stór hluti nemenda sé undir 18 ára aldri og sé því ekki sjálfráða. Einnig sé árshátíð með þessum hætti kostnaðarsöm og þannig sé hugsanlega verið að ýta undir mismunun nemenda með tilliti til fjárhagsstöðu. Einnig sé það að keyra yfir Hellisheiði að næturlagi á miðjum vetri með stóran nemendahóp ákveðin hætta.

Tæplega 350 manns hafa skráð sig í hóp á Facebook sem stendur fyrir mótmælunum í skólanum. Andri Friðjónsson formaður árshátíðarnefndar segir í samtali við fréttastofu að nokkuð fjölmennt sé í mótmælunum sem fara fram með friðsamlegum hætti. Skólameistari hafi rætt við hópinn í morgun og gera nemendur sér vonir um að skólayfirvöld endurskoði afstöðu sína í þessu máli.

Ekki náðist í skólameistara Fjölbrautarskólans í Breiðholti í morgun vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×