Lífið

Ráðleggur fólki að hætta að kaupa föt

Pamela Anderson og Vivienne Westwood. MYND/Cover Media
Pamela Anderson og Vivienne Westwood. MYND/Cover Media

Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood ráðleggur aðdáendum sínum að hætta að versla föt næstu sex mánuði.

„Ekki kaupa föt í hálft ár. Endurnýtið fötin ykkar," sagði Vivienne í viðtali á Sky sjónvarpsstöðinni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vivienne ráðleggur fólki að endurnýta fötin sín. Hún leggur ríka áherslu á að umhverfið sé mikilvægara en að eltast við nýjustu tísku.

„Veljið vandlega hvað þið eyðið peningunum ykkar í og kaupið minna af fötum," sagði hún jafnframt.

Lífið á Vísi er á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.