Fjölmörg mál þögguð niður Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. október 2010 17:13 Sigrún Pálína Ingvarsdóttir hlaut Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta í dag.
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem hlaut í gær jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir árið 2010, segir að alger viðhorfsbreyting hafi orðið gagnvart sér á Íslandi. Sigrún Pálína hefur búið í Danmörku undanfarin misseri. Hún segir að á tímabili hafi hún talið að hún gæti aldrei komið aftur til Íslands. Það hafi breyst og nú líði henni vel á Íslandi. Sigrún Pálína vakti fyrst athygli landsmanna árið 1996 þegar að hún sakaði Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi þegar að hún var sóknarbarn hans. Sigrún Pálína segir í samtali við Vísi að henni þætti viðurkenningin vera mikill heiður fyrir sig og málefnið. Mikil breyting hafi orðið frá árinu 1996 þegar að hún og fleiri konur sem klöguðu Ólaf Skúlason hafi fengið þau skilaboð að ef þær myndu tjá sig um málið yrði lífið murkað úr þeim. „Núna erum við verðlaunaðar fyrir það að tala," segir Sigrún Pálína. Það sé gríðarlega mikilvægt að fá viðurkenningu fyrir það að hafa rofið þögnina.Mikilvægt að fólk finni að því sé treyst Sigrún Pálína segist vera sannfærð um það að fjöldi kynferðisbrotamála sem hafi verið þögguð niður eigi eftir að koma upp á yfirborðið. Hluti þeirra sé innan kirkjunnar en langstærstur hluti annarsstaðar í samfélaginu. „Ég fæ mikið af meilum frá fólki sem er að segja mér sína sögu. Bæði fólk sem að ekki tengist þessu sviði en líka fólki sem er sjálft misnotað. Og margir eru kannski að segja frá þessu í fyrsta skipti," segir Sigrún Pálína. Sigrún Pálína segist bjartsýn á að það sem hafi gengið á innan kirkjunnar geri það að verkum að þeir sem hafi orðið fyrir ofbeldi annarsstaðar í samfélaginu af hálfu valdamanna fari að treysta því að frásögnum þeirra verði trúað. „Miklvægast af öllu er að við upplifum að okkur sé trúað. Það er ofbeldi númer tvö ef okkur er ekki trúað," segir Sigrún Pálína. Sigrún Pálína leggur áherslu á að allir þurfi að finna öruggan vettvang til að tala. Það sé of mikið af fólki sem sé orðið fimmtugt eða jafnvel sextugt og hafi aldrei talað.
Tengdar fréttir Sigrún Pálína fékk Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta Sigrún Pálína Ingvarsdóttir hefur fengið veitta Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir árið 2010. Í rökstuðningi með viðurkenningunni segir að Sigrún Pálína hafi sýnt ótrúlega þrautseigju og hugrekki með því að segja sögu sína, þrátt fyrir ítrekaðar og öflugar þöggunartilraunir. 23. október 2010 13:43 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Fagna „heimkomu“ Baldurs eftir margra vikna fjarveru Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira
Sigrún Pálína fékk Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta Sigrún Pálína Ingvarsdóttir hefur fengið veitta Jafnréttisviðurkenningu Stígamóta fyrir árið 2010. Í rökstuðningi með viðurkenningunni segir að Sigrún Pálína hafi sýnt ótrúlega þrautseigju og hugrekki með því að segja sögu sína, þrátt fyrir ítrekaðar og öflugar þöggunartilraunir. 23. október 2010 13:43