Rannsóknarnefnd um Icesave ótímabær Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. september 2010 20:00 Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði tillöguna fram ásamt fleiri þingmönnum. Mynd/ GVA.
Þingmannanefnd Atla Gíslasonar telur ótímabært að samþykkja tillögu þess efnis að fram fari rannsókn á innistæðum í útibúum Landsbanka Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu og embættisfærslum og ákvörðunum íslenskra stjórnvalda og samskipti við hollensk og bresk stjórnvöld vegna þeirra. Það voru Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, auk fleiri þingmanna úr stjórnarandstöðunni sem lagði tillöguna fram. Segir þingmannanefndin í nefndarálitinu sínu sem birt var í dag að meginþungi tillögunnar liggi í því að rannsökuð verði atvik sem rannsóknarnefnd Alþingis hafi hvorki skoðað né tekið afstöðu til í skýrslu sinni. Hlutverk þingmannanefndarinnar sé að taka afstöðu til skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og draga lærdóma af henni. Umrædd breytingartillaga falli því að mestu leyti utan verksviðs þingmannanefndarinnar og sé því óviðkomandi þingsályktunartillögu nefndarinnar. „Innan nefndarinnar var ekki andstaða við að slík rannsókn færi fram en meiri hluti nefndarmanna taldi að hún væri ekki tímabær fyrr en samningar við bresk og hollensk stjórnvöld um innlánsreikninga hefðu verið leiddir til lykta. Þá kom fram af hálfu ýmissa nefndarmanna að eðlilegt væri að slík tillaga yrði flutt á komandi löggjafarþingi. Bendir nefndin á að forsætisnefnd Alþingis hafa verið kynnt drög að frumvarpi um opinberar rannsóknarnefndir. Verði slíkt frumvarp að lögum er nauðsynlegur farvegur orðinn til fyrir slíkar rannsóknir," segir í nefndaráliti þingmannanefndarinnar.
Mest lesið Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Fleiri fréttir Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjá meira