Innlent

Þorgerður Katrín vill fund vegna St. Jósefsspítala

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill funda um St. Jósefsspítala. Mynd/ Vilhelm.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill funda um St. Jósefsspítala. Mynd/ Vilhelm.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir fundi þingmanna Suðvesturkjördæmis vegna St. Jósefsspítala/Sólvangs og boðaðs niðurskurðar í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011. Þorgerður vill að á fundinn verði boðaðir allir þingmenn suðvesturkjördæmis, sveitarstjórnmenn í Hafnarfirði, framkvæmdastjóri spítalans, forystumenn áhugahóps um framtíð St. Jósefsspítala/Sólvangs og heilbrigðisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×