Innlent

Vert að fylgjast með Rúnu

Rúna Magnúsdóttir
Rúna Magnúsdóttir
Rúna Magnúsdóttir, eigandi Connected-Women.com og meðstofnandi BRANDit, komst á lista sem birtur var á heimasíðu viðskiptatímaritsins Forbes yfir tuttugu konur í alþjóða­viðskiptalífinu sem Forbes telur vert að fylgja eftir á samfélagsvefnum Twitter.

Connected-Women.com er alþjóðleg samfélagssíða fyrir konur og BRANDit er fjögurra daga alþjóðleg þjálfunarstofa fyrir athafnakonur sem vakið hefur athygli víða um heim. BRAND-it verður næst haldin í Reykjavík 14.-17. október og í Rotterdam í nóvember. Þá hefur félag kvenna í atvinnurekstri í Bretlandi óskað eftir því að setja upp BRANDit í London á næsta ári.- jma



Fleiri fréttir

Sjá meira


×