Innlent

Margir Íslendingar í sambúð

Íslendingar eru frekar í sambúð en jafnaldrar þeirra í ESB-ríkjum. NordicPhotos/Getty
Íslendingar eru frekar í sambúð en jafnaldrar þeirra í ESB-ríkjum. NordicPhotos/Getty
Ungir Íslendingar eru líklegri til að vera í sambúð en gengur og gerist meðal ríkja Evrópusambandsins (ESB).

Í nýbirtri könnun Eurostat, tölfræðiskrifstofu ESB, kemur í ljós að 54 prósent kvenna og 47 prósent karla á aldrinum 18-34 ára eru í sambúð, hvort sem þau eru gift eða ógift. Það er nokkru hærra hlutfall en í ríkjum ESB þar sem heildarhlutfallið er 48 prósent meðal kvenna og 36 prósent meðal karla.

Hæst var hlutfallið meðal Finna, þar sem 63 prósent kvenna og 51 prósent karla eru í sambúð. - þj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×